Skipstjóri Exxon-Valdes stjórnar björgunaraðgerðum !

Ég held að sjaldan hafi nokkur komist viðlíka ílla að orði og Ingibjörg Sólrún, þegar hún líkti sér og ríkisstjórninni við björgunarsveit.  "Það er ekki tímabært að skipta um stjórn í slysavarnarfélaginu í miðjum björgunaraðgerðum."  Manni verður nú bara óglatt.  Mér dettur nú nokkrar aðrar setningar í hug, sem ættu líkast til betur við:

  • Björgunarsveitarmaður veldur stórslysi.  Var fyrstur á vettvang og stjórnar því aðgerðum á slysstað....
  • Skipstjóri Exxon Valdes stjórnar aðgerðum á strandstað.  Olían er á mína ábyrgð og það er mitt að verja hagsmuni minna viðskiptamanna, segir skipstjórinn aðspurður....
  • Ölvaður ökumaður heiðraður fyrir snarræði.  Ók niður gamlan Skóda og fjóra verkamenn frekar en að keyra á jeppa ráðherrans.

Á strandstað missir skipstjóri öll sín völd og Sýslumaður tekur við stjórn á vettvangi.  Þá skiptir engu máli hversu vel menn bregðast við aðstæðum, skipstjórnarmenn bera ábyrgð samkvæmt lögum og er refsað fyrir afglöp í starfi.  Um mál að því tagi má finna mörg dæmi.

Þjóðarskútan liggur í stórgrýttri fjörunni og slæst til í bryminu.  Skipstjórinn stendur enn við stýrið og lætur skrúfuna snúast, vonast til að næsta alda fleyti henni út.  Á meðan er áhöfnin og farmurinn að smá tínast fyrir borð og hverfur í hafið.

Er skömmin svo sterk að bera ábyrgð á gjaldþroti þjóðarinnar, að þau geta ekki vikið ?  Það skildi þá aldrei vera...


mbl.is Láti sig hverfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Auðunsson

En hvað með gamla skipstjórann sem setti ónýtt skip á flot og taldi okkur trú um að þetta væri frábært fley, Valgerði Sverrisdóttur? Þú ætlast varla til að sá slysaskipstjóri taki við stjórninni á ný?

Guðmundur Auðunsson, 25.11.2008 kl. 15:25

2 Smámynd: Sigurður Jón Hreinsson

Sæll Guðmundur.

Núverandi stjórnarherrar batna lítið við það að benda á aðra lélega stjórnmálamenn.  Ég get alveg svarað þér í hreinskilni, ég vil ekki Valgerði sem formann Framsóknarflokksins.

Aðalatriðið er að núverandi stjórn víki sem fyrst svo að möguleiki verði á að rannsaka það sem aflaga fór og að vinna aftur traust umheimsins.  Það getur þessi stjórn ekki gert.

Sigurður Jón Hreinsson, 26.11.2008 kl. 00:12

3 Smámynd: Ársæll Níelsson

Svo mikið er víst.

Ársæll Níelsson, 26.11.2008 kl. 08:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband