7.10.2008 | 23:45
Sjálfstæðir Vestfirðir
Jæja bloggarar, núna er rétti tíminn.
Íslenska ríkið er skuldsettara en nokkru sinni fyrr. Tími kominn á niðurskurð á öllum þáttum. Við sem undanfarin ár höfum búið við KREPPU, fólksfækkun, lánastopp og almenna niðursveiflu eigum ekki að þurfa að svara fyrir fjárfestingarfyllerí sunnlendingana.
Við þurftum að taka á okkur niðurskurð vegna þennslu sem var ekki hér, hvers vegna í ósköpunum ættum við að herða sultarólina þegar þrengir að á öðrum svæðum landsins. Ekki hafa aðrir landsmenn verið vinir okkar í okkar þrengingum.
Komið með girðingarefnið og lokum kjálkanum. Við erum betur sett án þessara sunnanmanna.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ekki seinna en strax. En passið bara vel upp á að gera Einar Kr. óvirkan.
Guðjón Arnar eða Sverrir ættu að fá jarlstignina.
Árni Gunnarsson, 8.10.2008 kl. 00:16
Kýldu á þetta, Sigurður.
Ársæll Níelsson, 9.10.2008 kl. 08:47
Þú getur fengið girðingu á um 8.000 kr lengdarmeterinn hjá Sindra, gæti verið að þú fáir magnafslátt. Girðingin er 1,23 m á hæð og vel mannheld.
Þetta kom nú til tals á sínum tíma hér í Vestmannaeyjum og vakti hneykslan landsmanna á sínum tíma þannig Sigurður Jón Hreinsson ég styð þig í þessu alfarið.
Ef þið ætlið að hleypa einum og einum í gegn þá hringi ég á undan mér ef ég skyldi fá þá flugu í höfðuðið að koma yfir griðinguna.
Friðrik Björgvinsson, 10.10.2008 kl. 00:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.