Sjálfstæðir Vestfirðir

Jæja bloggarar, núna er rétti tíminn.

Íslenska ríkið er skuldsettara en nokkru sinni fyrr.  Tími kominn á niðurskurð á öllum þáttum.  Við sem undanfarin ár höfum búið við KREPPU, fólksfækkun, lánastopp og almenna niðursveiflu eigum ekki að þurfa að svara fyrir fjárfestingarfyllerí sunnlendingana.

Við þurftum að taka á okkur niðurskurð vegna þennslu sem var ekki hér, hvers vegna í ósköpunum ættum við að herða sultarólina þegar þrengir að á öðrum svæðum landsins.  Ekki hafa aðrir landsmenn verið vinir okkar í okkar þrengingum.

Komið með girðingarefnið og lokum kjálkanum.  Við erum betur sett án þessara sunnanmanna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ekki seinna en strax. En passið bara vel upp á að gera Einar Kr. óvirkan.

Guðjón Arnar eða Sverrir ættu að fá jarlstignina.

Árni Gunnarsson, 8.10.2008 kl. 00:16

2 Smámynd: Ársæll Níelsson

Kýldu á þetta, Sigurður.

Ársæll Níelsson, 9.10.2008 kl. 08:47

3 Smámynd: Friðrik Björgvinsson

Þú getur fengið girðingu á um 8.000 kr lengdarmeterinn hjá Sindra, gæti verið að þú fáir magnafslátt. Girðingin er 1,23 m á hæð og vel mannheld.

Þetta kom nú til tals á sínum tíma hér í Vestmannaeyjum og vakti hneykslan landsmanna á sínum tíma þannig Sigurður Jón Hreinsson ég styð þig í þessu alfarið.

Ef þið ætlið að hleypa einum og einum í gegn þá hringi ég á undan mér ef ég skyldi fá þá flugu í höfðuðið að koma yfir griðinguna.

Friðrik Björgvinsson, 10.10.2008 kl. 00:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband