20.3.2008 | 20:17
Viðvörun til vegfarenda
Það er rétt að vara þá vegfarendur við sem eru á leiðinni um Hrafnseyrar og Dynjandisheiði, að þær eru ófærar sem stendur, hafa verið undanfarna tvo mánuði og ef veðurguðirnir eru Vegagerðinni hliðhollir verða heiðarnar áfram ófærar næsta mánuðinn.
Er því rétt að benda þeim ökumönnum á sem staddir eru á þessum tveimur heiðum, að fara sparlega með eldsneyti og mat. Þeir gætu þurft að bíða svolítinn tíma.
Hinir sem ekki eru farnir af stað og þurfa að komast milli Patreksfjarðar og Ísafjarðar er bent á að þessir 467km lenging á leiðinni er nauðsynleg til að tryggja afkomu olíufélaganna. Þetta er ekki haft svona að ástæðulausu.
- Ísafjörður - Patreksfjörður 172km sumarvegur
- Ísafjörður - Patreksfjörður 639km vetrarvegur
- Lenging 467km eða margfeldi 3,71
Varað við sandstormi á S-Austurlandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Fréttablogg | Breytt 7.4.2008 kl. 13:18 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.